Við hjá Epal mælum með að nýta tímann vel í samkomubanni og munum deila með ykkur góðum hugmyndum, hvort sem það sé að fjárfesta í fallegum myndaalbúmum og fara í gegnum myndir eða að viðhalda húsgögnum sem annars aldrei gefst tími til.
Öll húsgögn þarfnast viðhalds –
Guardian ver húsgögnin þín og viðheldur fegurð þeirra og verðgildi með vörulínum sem eru sérstaklega hannaðar til að verja leður, textíl, við og fleira. Náttúruleg efni eins og leður og við þarf að hugsa vel um og með því að hreinsa og bera á húsgögnin haldast þau falleg um ókomna tíð.
Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur betur þessar gæða vörur. Hægt er að hafa samband við starfsfólk okkar í húsgagnadeild varðandi faglega ráðgjöf hvaða Guardian vöru skal velja, gott er að senda tölvupóst á epal@epal.is. Sjá einnig í vefverslun Epal https://www.epal.is/vorumerki/guardian og á heimasíðu Guardian.
Við mælum með að skoða þetta myndband hér að neðan frá Fritz Hansen og Carl Hansen & son sem leiðbeinir varðandi umhirðu á leður og viðarhúsgögnum.
The post Epal mælir með : Viðhald húsgagna í samkomubanni appeared first on Epal.