Quantcast
Channel: blogg, Author at Epal
Viewing all articles
Browse latest Browse all 753

Tilboð á glæsilegum Ash sófum frá Eilersen

$
0
0

Við kynnum frábært tilboð á Ash sófum frá Eilersen sem stendur til 31. desember.

Ash sófinn er hannaður af Jens Juul Eilersen og stendur fyrir gleði, þægindi, gæði og virkni. Ash er tímalaus í hönnun sinni og er sófinn í klassískum skandinavískum stíl ásamt því að vera einstaklega þægilegur sem er einmitt það sem Eilersen eru þekktastir fyrir.

Danski húsgagnaframleiðandinn Eilersen eru heimsþekktir í dag fyrir gæði og góða hönnun, en sögu þeirra má rekja aftur til ársins 1895 þegar hinn ungi Niels Eilersen starfaði sem hestakerrusmiður. Hann var sá fyrsti í Danmörku til að nota gufu til að beygja við, en þá aðferð notaði hann til að smíða kerruhjólin. Þegar sá tími kom að bílar tóku við af hestukerrum hóf Eilersen verksmiðjan að smíða sæti í bíla og rútur. Þegar að verksmiðjan brann til kaldra kola árið 1934 breyttust áherslur Eilersen algjörlega sem hóf þá að framleiða hágæða bólstruð húsgögn sem í dag þykja með þeim allra vönduðustu. Í dag rekur fjórða kynslóð Eilersen fjölskyldunnar verksmiðjuna sem einbeitir sér að hönnun og smíði á gæða sófum sem njóta mikilla vinsælda í dag um heim allann fyrir einstök gæði og fallega hönnun.

Verið velkomin til okkar í Epal Skeifunni og kynnið ykkur gæði Eilersen sófanna.

The post Tilboð á glæsilegum Ash sófum frá Eilersen appeared first on Epal.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 753