Við kynnum nýtt afmælistilboð í tilefni af 40 ára afmæli Epal.
CH22 stóllinn var einn af fyrstu stólunum sem Hans J. Wegner hannaði fyrir danska húsgagnaframleiðandann Carl Hansen & Søn og var fyrst kynntur til sögunnar árið 1950 ásamt heimsþekkta CH24 sem betur er þekktur sem Wishbone chair / Y-stóllinn. Fyrr á árinu hóf Carl Hansen & Søn endurframleiðslu á þessum einstaka stól og bjóðum við nú upp á hann á frábæru tilboðsverði.
Stóllinn er framleiddur í dag eftir nákvæmum teikningum Wegner en mjög flóknar samsetningar hans eru líkleg ástæða þess að stóllinn hefur verið svo lengi úr framleiðslu hjá fyrirtækinu. CH22 er einstalega fallegur hægindarstóll og mikil meistarasmíði eins og sjá má á myndskeiðinu hér að neðan.
The post HANS J. WEGNER CH22 Á TILBOÐSVERÐI appeared first on Epal.